þriðjudagur, mars 18, 2008
Oh man oh man...
sunnudagur, mars 16, 2008
Nei, nú er thad BÙID!!
fimmtudagur, mars 06, 2008
EiNhlEyP!
Tek thad fram ad thessi mynd lysir ekki minni skodun á fyrstu stefnumótum. :DÉg hef ad undanförnu velt tví talsvert fyrir mér hvers vegna ég sé einhleyp (enntháá??! :D). Veit thad fyrir víst ad ég telst ekki sérlega ófríd og ad flestir geta tholad ad vera nálægt mér í lengri eda styttri tíma. Ekki allir kannski, en flestir:) Ég ákvad thar af leidandi ad rannsaka thetta mál og reyna ad finna ástædu/afsökun fyrir thessu “vandamáli” mínu. Ég fór yfir hinar mismunandi hlidar lífs míns.
Skólinn
Í Vidskiptaháskóla Kaupmannahafnar eru líklega um 6000 thúsund karlmenn vid nám. Thad vill hinsvegar til ad 95% theirra eru í tímum í annari byggingu en ég. Thegar ég hóf nám vid skólann var ég sett í bekk med 8 mjög svo álitlegum karlkostum. Viku seinna var ég færd yfir í bekk med adeins 4 misálitlegum stráklufsum og thad var ádur en ég hafdi nokkurn tíman verid í tímum med hinum.
“Úrvalid”
Strákur 1: Frekar sætur, med frábæran fatastíl, einhleypur barnlaus…og já, samkynhneigdur..!
STRIKE 1
Strákur 2: Lítur vel út, skemmtilegur, fatastíllinn allt í lagi (thad er hægt ad laga svoleidis:D), hefur gódan humor…og já..er trúlofadur.
STRIKE 2
Strákur 3: Múslimi ættadur frá einhverju landi einhversstadar langt langt í burtu, má ekki drekka, borda skinku og heldur ekki deita hvítar ótrúadar stelpuskjátur eins og mig.
STRIKE 3??
Strákur 4: Ótholandi dani, sítalandi, ófrídur, illa lyktandi og…ojj
“STRIKE 4”???
Vinnan
Thegar ég hóf vinnu á Cassiopeia thá var mér sagt ad thad væri bara ein önnur kona ad vinna thar. Lofadi gódu?
“Úrvalid” úr eldhúsinu
Yfirkokkurinn Markus: Mjøg sætur og skemmtilegur...
Nidurstada: Já takk!!
Adstodarkokkur nr.1, Hani (já hann heitir thad!): 28 ára gamall, krúttlegur og voda mikid ljúfmenni. GIFTUR.
Nidurstada: Ekki hægt?
Adstodarkokkur nr. 2, Kenneth: 120 kílóa dani á fertugsaldri , einhleypur tveggja hunda fadir sem kallar mig alltaf svæske.
Nidurstada: HELL no.
Uppvaskarinn Mamút: Heitir Mamút og lítur út alveg eins og Mammút.
Nidurstada: Hallóó hann er uppvaskari!??!
“Úrvalid” úr Salnum
Tjónn nr. 1, Michael: Trítugur dani, leikur sér í Nintendo allann daginn thegar hann er ekki ad vinna. Er ad læra töfrabrögd og mætir alltaf med eitthvad nytt bragd thegar hann er ad vinna.
Nidurstada: Galdradu mig hédan!!
Tjónn nr. 2, José: Kemur frá Kanarí og er óheyrilega skemmtilegur- tví hann er alltaf á tví í vinnunni. Hann á konu og tvö börn en stakk pent upp á tví ad hann hefdi ekkert á móti framhjáhaldi..
Nidurstada: Nei!
Tjónn nr.3, Terry: 43 ára, sköllóttur og hálf tannlaus greyid. Hann er hálfur frakki, hálfur bandaríkjamadur en uppalin í Álaborg. Hann er hálfur hvítingi og hálfur svertingi. Í stad thess ad fara í bad spreyjar hann á sig ilmvatni (franska genid?). Og já, ekki má gleyma tví ad hann er nybuinn ad barna hina stelpuna sem vinnur med mér…??
Nidurstada: Ò GOD NEI
Skemmtanalífid
Vinkonudjamm: Fer thá yfirleitt á einhverja tónleika thar sem flestir strákarnir eru svona skítugir, dreadlocka ungdomshus typur.
Nidurstada: Farid í bad.
Fótboltadjamm: Thad eru alltaf BARA stelpur.
Nidurstada: Hvers á ég ad gjalda??
Djamm med Ása: Já ég fer frekar mikid í bæinn med Ásanum mínum. Thá er alltaf fuuuuullllt af fallegum strákum. Their eru bara meira heitir fyrir fólki med typpi.
Nidurstada: Ég er ekki med svoleids…
Er semsagt búin ad rannsaka thetta mál og hef næstum komist ad nidurstödu. Annadhvort er ég bara svona svakalega óheppinn eda ég tharf ad fara ad lækka kröfurnar mínar (er svooo ekki ad fara ad gera thad:D).
fimmtudagur, febrúar 28, 2008
Afmæli! Cumpleanos!! Fødselsdag! Geburtstag!...
Þessi unga stúlka á víst afmæli í dag---
og er 24!!????

Já það má segja að tíminn lídi annnnsi hratt! En í dag hélt ég svona lítid dejligt kökupartý, það var mjög huggulegt! Fékk 9 gjafir eða eitthvað..samt tók ég fram að þetta væri bara smá kaffiboð og það ætti ekki ad koma með gjafir..en nei:D Er samt bara ánægð með það, ætla ekki að þykjast að mér finnist ekki gaman ad fá gjafir heheh! Svo er stefnan tekin á einhvern bar með uppáhalds Ásanum mínum núna..en
Takk fyrir hamingjuóskirnar allir:*
Kveðjur frá Kaupmannahöfn
Hmm hef ég eitthvað breyst sídan þessi mynd var tekin?? Heh
miðvikudagur, febrúar 20, 2008
sunnudagur, febrúar 17, 2008
Le week END
miðvikudagur, febrúar 13, 2008
Díos me ayuda!!!
sunnudagur, febrúar 10, 2008
Fordast veruleikann!!!
sunnudagur, febrúar 03, 2008
Alt for meget Gin og Vodka
þriðjudagur, janúar 29, 2008
Missing the old days
Hvad vard um daganna thar sem madur thurfti bara ad vakna, leika sér og fara svo aftur ad sofa?sunnudagur, janúar 20, 2008
Oh DEAR Lord!!!
Salem: How are u today? Fine, yes?
Ég: Uhm, Im fine, u?
S: Im good..
É: ok..
S: I send message to u today.
É: I know, and I didn't reply because I already told u not to send me any messages.
S: I want u to be my fiancée.
É: Well..that is never gonna happen!
S: Why not??
É: Because I don't like u that way and I have a boyfriend.
S: I don't need your boyfriend, I need u.
É: No u don't need me and I certainly do not need u!
S: I need u!!
É: U don't need me and Im never gonna want anything with u!
S: I want u in my heart forever and always.
É: NOT GONNA HAPPEN!!!!
S: Yes, it will!! It is going to happen, u will be mine!
É: NO!
S: YES!!
É: NoooooooooooooooooooooOOOOOOO!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Og svo endaði það með því að ég flúði heim til Ása svo ég fengi frið. Tala ég í gátum eða bara algjörlega undir rós? Ég skil ekki alveg!
80's
þriðjudagur, janúar 15, 2008
Undarlegir meðleigjendur!
Olivia: 26 ára stelpa frá Kamerún. Er gift Laurence. Hún er desibel drottning Afríku og talar svona langt yfir þeirri tíðni sem þarf til. Hún talar stöðugt í símann- á nóttunni, og talar sko ekkert lágt, held ekki að hún fatti að hún eigi ekki að öskra yfir til Afríku- heldur nota símtækið! Hún eldar á morgnanna á milli 7 og 8...með tilheyrandi afríkanskri músík og ekki svo góðum ilmi. Hún geymir hárkolluna sína fyrir ofan klósettið, sem varð til þess að ég fékk næstum taugaáfall þar sem þetta líkist einhverskonar villidýri. Ef hún fær heimsóknir þá er það mjög snemma á morgnanna og þá eru sko aldeilis lætin þegar afríkanskar desibel drottningar koma saman.
Laurence: Maðurinn hennar Oliviu. Það besta við hann er að hann er alltaf fjarverandi:)
Salem: 30 ára maður frá Ghana. Hann eldar sínar máltíðir á nóttunni. Held að hann lifi á einhverskonar svínafitu eða fiskhausum. Það var hann allavega að elda þegar ég læddist til að kíkja í pottana sem ég varð að gera því það var svo fjandi vond lykt af þessu! Hann er ekki hávær, en það er það sem gerir hann mest creepy þegar hann stendur fyrir framan hurðina mína þegar ég opna. Hann fékk líka símanúmerið mitt með því skilyrði að hann notaði það aðeins í neyð, t.d. þegar hann væri læstur úti. Síðan þá hef ég stöðugt fengið hringingar eða skilaboð sem byrja öll á "hey baby girl".
Fékk til dæmis ein 16 skilaboð í fyrrakvöld. Það skiptir engu þó ég svari ekki. Kræst.
anywhú..bara bið að heilsa frá Köben!
fimmtudagur, janúar 10, 2008
Yeah baby Yeah
Er þetta ekki bara fínt? Hunsið bara bangsímonteppið á gólfinu:)
Hilsen fra Kaupmannahöfn.
miðvikudagur, janúar 02, 2008
BjórinnBjórinn Allstaðar! :)
Jæja þá er komið að því að ég bloggi í fyrsta sinn á árinu 2008. Ég vil byrja á að óska ykkur gleðilegs árs og þakka fyrir það gamla. Um jólin var ég heima á Fáskrúðsfirði, það var æðislegt. Það var auðvitað allt of mikið af mat í boði en það fylgir víst jólunum:) Svo skellti ég mér á djammið á annan í við jólum, fór fyrst á Sumarlínu, þar voru mjööög fáir en það var góðmennt. Það endaði svo með því að ég ákvað að skella mér á ball á Eskifirði með Aðalbjörgu og Grétu. Það var bara mjög fínt, Á móti Sól var að spila. Svo fór ég líka í Jeppaferð upp í staðarskarð með systur, bróður, 2 mágum mínum og Bjarneyju Birtu einhvern tímann milli jóla og nýjárs. Það var skelfilegt en samt gamanJ Geggjað útsýni...
En já, myndir, eigum við ekki að segja að ég skelli bara inn myndum þegar ég er búin að kaupa nýja tölvuJ
Hilsen, 80‘s!
þriðjudagur, desember 25, 2007
sunnudagur, desember 23, 2007
Ísland, fagra Ísland
- Flug frá Kastrup til Keflavíkur
- Flugrúta
- Taxi
- Jólstaðarhlíð
- Elín og Sólveig
- Kjúlli, Nóa Kropp, kea skyr og kókómjólk
- Innanlandsflug frá Rvk til Egs..yikes..en gekk vel
- Hitti alla fjölskylduna:)
- 5 kettlingar á heimilinu..jeiijjjjjjjjjjj
- Íslenskt NaMMi og mikið af því (o nei nú fitna ég!)
- Matur...úff
- Malt og Appelsín (bara fyrir Margréti:))
- Íslenskt vatn er best
- Jólagjafa leit með mömmu og pabba
- Asti Gancia og Trivial
- Ási og Paw komnir líka
Kveðja frá Skólavegi 12, 750 Far Far Away Land
fimmtudagur, desember 13, 2007
No longer a little gipsy is the titel of the song!
· Að ég er ekki lengur sígauni/flakkari/bag-lady eða neitt í þeim dúr
· Ég sef ekki á sófanum í stofunni hans Ása
· Ég sef ekki á vindsænginni hennar frænku minnar
· Ég sef heldur ekki í sama rúmi og Tine vinkona mín
· Ég á mitt eigið rúm
· Ég á mína eigin sæng
· Ég á mitt eigið borð
· Ég á mitt eigið náttborð
· Ég á mína eigin kommóðu
· Ég á minn eigin lampa
· Ég á minn eigin spegil- þar sem ég sé bæði tær og höfuð! Frábært
Já það er aldeilis frábært að vera komin með herbergi. Mér er meira segja næstum sama þó að það séu kakkalakkar í eldhúsinu (næstum sama þýðir auðvitað að ég hringi á meindýraeyði þegar ég kem heim úr jólafríi:)). Mér er líka næstum sama þó að einn af meðleigjendum mínum vilji endilega fá símanúmerið mitt og make the sex yes. Nei takk!! Mér er líka næstum sama þó að það sé bangsímon gólfteppi í herberginu mínu. Næstum. Svo er auðvitað frábær kostur að hugleikjafélag Kaupmannahafnar sé staðsett á jarðhæð í sama húsi og ég bý. Þar get ég fundið mér nýtt áhugamál..heheh.
En já.. svo er annað að frétta að ég var á julefrokost með bekknum mínum. Það var bara ágætt, læt fylgja myndir af því svona til að lífga upp á þessa færslu—
En annars hlakka ég bara til að koma til Íslands þann 15 des og svo austur til Fáskrúðsfjarðar þann 17 des...!!!
Anne Marthe (Noregur) og Maiken (suður afríka)
miðvikudagur, nóvember 28, 2007
"Bønder, tømre og jyske kneite"
Þetta hefur mér tekist að gera upp á síðkastið:
- Æla í lest sem var full af fólki
- Fór á "ljósmynda námskeið" sem var aldeilis ekki á planinu
- Datt kylliflöt með andlitið í götuna (fékk samt ekki skrámu!) þegar ég var að hjóla heim úr vinnu á fyrsta og eina hálku/snjódegi danmerkur í vetur:)
- Sofna í tíma í fyrsta sinn á ævinni og svo dreymdi mér að ég væri að detta á hjóli svo ég kipptist við, sparkaði í borðið-vaknaði og sá að allir voru að horfa á mig. Það var frábært. Ég ELSKA að vera miðpunktur athyglinnar. NOT!
- Talandi um að vera miðpunktur athyglinnar-þá flaug ég á hausinn í vinnunni líka (það er trappa í miðjum veitingastaðnum)...svo stóð ég upp, eeeeldrauð í framan, hneigði mig og sagði: "næste forstilling om en halv time" eða "næsta sýning eftir hálftíma. Ágætis redding er það ekki??:)
Já mér hefur tekist ýmislegt:) Ég kýs bara að segja ykkur frá öllu því misgáfulega sem ég hef gert upp á síðkastið til að ykkur líði vel með ykkur sjálf;) heheheh´...en já yfirmaðurinn minn er við það sama-nema hann er hættur að hringja klukkan átta á morgnana. Hann hefur skynjað illar hugsanir mínar til hans! Svo eru alltaf einhverjir gamlir karlar eða miðaldra perrar á veitingastaðnum sem finnst að ég eigi líka að fá knús þegar þeir eru að kveðja ættingja sína eftir silfurbrúðkaups veislu eða afmæli eða einhvern fjandann ..ojjj....:)
Þetta var aldeilis skemmtilegt blogg..set inn myndir fljótlega:)
Kem til Íslands 15 des Btw...jiejjj
sunnudagur, nóvember 11, 2007
FieStA
Svo í gær fór ég á tónleika með Tine, Jenny Wilson var að spila-hún er ekkert smá góð. Download please. Komum heim eitthvað um klukkan 3 og svo fór ég í vinnuna í dag kl 11 og var að vinna til 23 í 200 manna veislu. Það gekk glimrandi fyrir utan að ég var með 39 stiga hita...heheh:) En já..hef svosem ekkert meira að segja..svo ég ætla bara að skella inn myndum.
Allir að kommenta!! ( Gert fyrir Sólveigu:))
Hér er Carla sem Björk í búning saumuðum af henni sjálfri;)

Mads, Katrine, David, Simon og ég á barnum (svölunum;))

Ida aka Courtney Love

Ég og Tine að fíflast fyrir tónleikana:)
Kampavínið elskar mig-og ég elska það tilbaka!!
mánudagur, október 29, 2007
"U want tandori chicken yess?"
Svo um helgina var fótboltalokahóf, var búin að hlakka lengi til að fara í það partý. Það var úti í Lyngby sem er frekar langt frá þar sem ég bý núna, svona 30 mín með lest..en ég lét mig auðvitað hafa það. Svo borðuðum við saman og spiluðum og eitthvað..og svo fékk ég ælupest. Frábært. Gat ekki verið betri tímasetning! Þannig að ég ældi eins og múkki og þurfti svo að fara rétt áður en alvöru partiið byrjaði og ná síðasta strætóinum upp á lestarstöð.
Á strætóstoppistaðnum hitti ég einhvern indverja sem vildi ekki hætta að spjalla...og eina sem ég gat hugsað um var að yrði að passa að æla ekki á manninn! Svo settist hann við hliðina á mér í strætónum-þó svo að það væru um það bil 30 sæti laus. Grejt! Hann spjallaði og spjallaði...alla leiðina upp á lestarstöð. Hann spurði hvort hann mætti ekki fá númerið mitt-ég sagði „ehh nei ég gef ekki ókunnugum númerið mitt“ (þá meinti ég auðvitað að bara ókunnugir fallegir menn fá númerið mitt;)), en þá spurði hann hvort ég vildi ekki fá númerið hans! En ég sagði að kærastinn minn yrði afbrýðissamur..(hann veit ekki að kærastinn minn er Ashton Kutcher, en bara í draumum mínum hehhhehhJ). En ég komst svo til klakklaust upp á lestarstöð og um borð í lestina. Svo þegar ég var komin svona hálfa leið þá þurfti ég nauðsynlega að æla..AfTuR! Ég ákvað að ég þyrfti að fara út á næstu stoppistöð..en ég gat ekki beðið svo ég ældi í lestinni...! VANDRÆÐALEGT!!! Fólk hélt örugglega að ég væri dauðadrukkinn eða eitthvað;( En ég komst svo heim á endanum þar sem ég hélt áfram að kasta upp alveg þangað til klukkan 4 um nóttina en þá sofnaði ég loksins. Þetta var alveg hræðilegt. Það er ekki gaman að fá æluspest;(
Jæja ég vona að það sé gaman að lesa um ælu. Það er allavega það eina sem ég hef að segja...heheheh:) En hér koma nokkrar myndir úr fótboltapartíinu:
Þetta var leikur þar sem við erum með spjöld þar sem stendur td. Hver er gáfuðust? Svo eigum við að kjósa...:) (audvitad var ég kosin gáfudust..hahahah)





