miðvikudagur, desember 27, 2006

Denmark better be ready for me 'cause i'm ready for Denmark

Já það er svei mér þá bara komið að því. Flug suður á morgun, fer svo beint út á leifstöð og svo bara út til Köben:) Kem ekki aftur til Íslands fyrr en í fyrsta lagi í júní..en allavega hlakka ekkert smá til að hitta bróðir og hans kæreste, fara í lýðháskólan, hitta Elínu, Valgerði og Bonnie vinkonu mína!!

Anýwhú....Vi ses snart måske...

laugardagur, desember 23, 2006

Jólakveðja..

Já ég vildi bara kasta á ykkur jólakveðju:) Ég verð nú að segja að ég er ekki enn komin í jólaskap neitt sérstaklega, er að fara að vinna á morgun frá átta til fjögur..og líka þann 25 og þann 26! Ekkert að gera sig..nei nei. En já er eimmitt farin að hlakka sjúklega til að fara út sem er eimmitt eftir 5 daga eða svo:) En það var samt ekkert skemmtilegt í gær því að þá átti ég að vera á Ak að hitta stelpurnar mínar en komst ekki vegna þess að hér er bara alltaf snarbrjálað veður:( ÉG var ekkkkki sátt! En svona er víst lífið maður verður víst að sætta sig við þetta:)+

En allavega, ég óska ykkur bara gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og vona að hitta ykkur hress á nýju á nýju ári..

þriðjudagur, desember 12, 2006

Pirringur!!

Vá það er bara pirrandi þegar maður er búin að skrifa skemmtilega og safaríka færslu að þá vill hún ekki savast inn!!!!!!!!!! ohhh