þriðjudagur, janúar 29, 2008

Missing the old days

Hvad vard um daganna thar sem madur thurfti bara ad vakna, leika sér og fara svo aftur ad sofa?

Ég vil fá thá aftur!!!

Og ég vil thá aftur núna.

Madur hafdi ekki áhyggjur af neinu, thurfti ekki ad taka mikilvægar ákvardanir, thurfti ekki ad tvo tvott, thurfti ekki ad borga leigu, thurfti ekki ad vita neitt um import-substituting industrialization...

Ég vil vera lítil, saklaus og bara leika mér allan daginn.

sunnudagur, janúar 20, 2008

Oh DEAR Lord!!!

Þetta er brot úr samtali sem ég átti í dag við Salem, meðleigjanda/stalker -inn minn.

Salem: How are u today? Fine, yes?
Ég: Uhm, Im fine, u?
S: Im good..
É: ok..
S: I send message to u today.
É: I know, and I didn't reply because I already told u not to send me any messages.
S: I want u to be my fiancée.
É: Well..that is never gonna happen!
S: Why not??
É: Because I don't like u that way and I have a boyfriend.
S: I don't need your boyfriend, I need u.
É: No u don't need me and I certainly do not need u!
S: I need u!!
É: U don't need me and Im never gonna want anything with u!
S: I want u in my heart forever and always.
É: NOT GONNA HAPPEN!!!!
S: Yes, it will!! It is going to happen, u will be mine!
É: NO!
S: YES!!
É: NoooooooooooooooooooooOOOOOOO!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Og svo endaði það með því að ég flúði heim til Ása svo ég fengi frið. Tala ég í gátum eða bara algjörlega undir rós? Ég skil ekki alveg!

80's

þriðjudagur, janúar 15, 2008

Undarlegir meðleigjendur!

Já það má segja að meðleigjendur mínir séu meira og minna furðulegir.

Olivia: 26 ára stelpa frá Kamerún. Er gift Laurence. Hún er desibel drottning Afríku og talar svona langt yfir þeirri tíðni sem þarf til. Hún talar stöðugt í símann- á nóttunni, og talar sko ekkert lágt, held ekki að hún fatti að hún eigi ekki að öskra yfir til Afríku- heldur nota símtækið! Hún eldar á morgnanna á milli 7 og 8...með tilheyrandi afríkanskri músík og ekki svo góðum ilmi. Hún geymir hárkolluna sína fyrir ofan klósettið, sem varð til þess að ég fékk næstum taugaáfall þar sem þetta líkist einhverskonar villidýri. Ef hún fær heimsóknir þá er það mjög snemma á morgnanna og þá eru sko aldeilis lætin þegar afríkanskar desibel drottningar koma saman.

Laurence: Maðurinn hennar Oliviu. Það besta við hann er að hann er alltaf fjarverandi:)

Salem: 30 ára maður frá Ghana. Hann eldar sínar máltíðir á nóttunni. Held að hann lifi á einhverskonar svínafitu eða fiskhausum. Það var hann allavega að elda þegar ég læddist til að kíkja í pottana sem ég varð að gera því það var svo fjandi vond lykt af þessu! Hann er ekki hávær, en það er það sem gerir hann mest creepy þegar hann stendur fyrir framan hurðina mína þegar ég opna. Hann fékk líka símanúmerið mitt með því skilyrði að hann notaði það aðeins í neyð, t.d. þegar hann væri læstur úti. Síðan þá hef ég stöðugt fengið hringingar eða skilaboð sem byrja öll á "hey baby girl".

Fékk til dæmis ein 16 skilaboð í fyrrakvöld. Það skiptir engu þó ég svari ekki. Kræst.

anywhú..bara bið að heilsa frá Köben!

fimmtudagur, janúar 10, 2008

Yeah baby Yeah

Jæja! Komin til Kaupmannahafnar aftur. Lenti um kl 19:00 og var svo barasta komin í starfsmannapartý niður á Cassiopeia kl 20:30. Hress og kát. Það var mjög gaman, þar var boðið upp á marokkanskan mat sem baaara góður og svo var dj og allskonar leikir á eftir. Mjög gaman bara. Kom samt snemma heim þar sem ég átti eftir að gera verkefni. Kláraði það um 3 leytið um nóttina, fór að sofa og vaknaði svo hress og kát kl kortér í sjö (6 að íslenskum) og fór og skilaði því. Fór svo í skólann og var þar til 15. Svo kom ég bara heim og lagðist í dvala þar til 8 og fór þá til Tine minnar og við spiluðum trivial og höfðum það hyggeligt:) Svo hef ég barasta verið að læra, verið í skólanum og farið á fótbolta æfingu. Ágætt bara. Hér koma svo myndir af fallega herberginu mínu..svona í tilefni dagsins bara!

Er þetta ekki bara fínt? Hunsið bara bangsímonteppið á gólfinu:)

Hilsen fra Kaupmannahöfn.

miðvikudagur, janúar 02, 2008

BjórinnBjórinn Allstaðar! :)

Jæja þá er komið að því að ég bloggi í fyrsta sinn á árinu 2008. Ég vil byrja á að óska ykkur gleðilegs árs og þakka fyrir það gamla. Um jólin var ég heima á Fáskrúðsfirði, það var æðislegt. Það var auðvitað allt of mikið af mat í boði en það fylgir víst jólunum:) Svo skellti ég mér á djammið á annan í við jólum, fór fyrst á Sumarlínu, þar voru mjööög fáir en það var góðmennt. Það endaði svo með því að ég ákvað að skella mér á ball á Eskifirði með Aðalbjörgu og Grétu. Það var bara mjög fínt, Á móti Sól var að spila. Svo fór ég líka í Jeppaferð upp í staðarskarð með systur, bróður, 2 mágum mínum og Bjarneyju Birtu einhvern tímann milli jóla og nýjárs. Það var skelfilegt en samt gamanJ Geggjað útsýni...

En áramótin voru líka frábær. Ég ákvað að fara norður og hitta stelpurnar í staðinn fyrir að vera hérna heima. Var heima hjá Valgerði, það var ÆÐISLEGT!! Allt of mikið af mat þar líka..en svona er þetta:) En það var rosalega gott að vera hjá Betu, Gumma og Valgerði:) Takk fyrir mig!! Á gamlársdag eftir mat og flugelda spiluðum við nafnaleikinn sem við förum oftast í þegar við erum saman, það voru semsagt ég, Elín, Valgerður og Sólveig og einhverjir fleiri. Eftir það fórum við niður í bæ á Kaffi Karólínu, það var svona ágætt...en ekki að meika prumpulykt og svitalykt sem maður tekur vel eftir þegar það er ekki leyft að reykja lengur. OJJJJ!!!

Svo er förinni heitið til Reykjavíkur þann 6 janúar og svo áfram til Kaupmannahafnar þann 7. Jólafríið er búið. Svekkjandi.

En já, myndir, eigum við ekki að segja að ég skelli bara inn myndum þegar ég er búin að kaupa nýja tölvuJ

Hilsen, 80‘s!