· Að ég er ekki lengur sígauni/flakkari/bag-lady eða neitt í þeim dúr
· Ég sef ekki á sófanum í stofunni hans Ása
· Ég sef ekki á vindsænginni hennar frænku minnar
· Ég sef heldur ekki í sama rúmi og Tine vinkona mín
· Ég á mitt eigið rúm
· Ég á mína eigin sæng
· Ég á mitt eigið borð
· Ég á mitt eigið náttborð
· Ég á mína eigin kommóðu
· Ég á minn eigin lampa
· Ég á minn eigin spegil- þar sem ég sé bæði tær og höfuð! Frábært
Já það er aldeilis frábært að vera komin með herbergi. Mér er meira segja næstum sama þó að það séu kakkalakkar í eldhúsinu (næstum sama þýðir auðvitað að ég hringi á meindýraeyði þegar ég kem heim úr jólafríi:)). Mér er líka næstum sama þó að einn af meðleigjendum mínum vilji endilega fá símanúmerið mitt og make the sex yes. Nei takk!! Mér er líka næstum sama þó að það sé bangsímon gólfteppi í herberginu mínu. Næstum. Svo er auðvitað frábær kostur að hugleikjafélag Kaupmannahafnar sé staðsett á jarðhæð í sama húsi og ég bý. Þar get ég fundið mér nýtt áhugamál..heheh.
En já.. svo er annað að frétta að ég var á julefrokost með bekknum mínum. Það var bara ágætt, læt fylgja myndir af því svona til að lífga upp á þessa færslu—
En annars hlakka ég bara til að koma til Íslands þann 15 des og svo austur til Fáskrúðsfjarðar þann 17 des...!!!
Anne Marthe (Noregur) og Maiken (suður afríka)
5 ummæli:
Góda ferd heim!
Drekktu eins mikid jólaöl (malt og appelsín) og thú getur fyrir mig (plííííís)
Bid ad heilsa öllum :*
hvað meinaru næstum því sama þótt það sé bangsímon teppi á gólfinu?? mig langar í bangsímon teppi á gólfið mitt... :p
Margrét: Ég drekk reyndar ekki gos..en kannski geri ég undantekningu í þetta skiptið:) Og ég var búin að gera handa þér jólakort en ég fann ekki heimilisfangið þitt!
Héðinn: Ég skal bara rífa það af, rúlla því saman og koma með það til þín sem sérstaka jólagjöf;) heheh
Er ekki öruggt að þú komir norður um áramótin (og verðir hjá mér)?? :o)
og hvað meinarðu með að finna þér NÝTT áhugamál??? greinilega ein búin að gleyma fortíð sinni. ég meina það! voru þær þér einskis virði, stundirnar sem við áttum saman í hugleikjaparadís???
Skrifa ummæli