Það hefur verið hefð í Grundtvigs Højskole til margra ára að það sé keppt í fótbolta við kristinn íþrótta-højskole á hverju ári. Grundtvigs hefur aðeins unnið tvisvar, strákaliðið einu sinni og stelpuliðið einu sinni. Í ár var ég í liðinu, við byrjuðum að æfa fyrir tæpum tveimur mánuðum og höfum náð miklum framförum þar sem flestir í liðinu voru að spila fótbolta í fyrsta sinn.
sunnudagur, maí 20, 2007
Trúlausir gegn Trúuðum
mánudagur, maí 14, 2007
Ullfuck Suckstival
Föstudagur
Þetta byrjaði ekki neitt sérlega vel, þetta var allavega ekki spennandi þannig að ég og Tine vinkona mín skírðum þetta Ullfuck Sukstival í staðinn og náðum í penna og breyttum titlinum á öllum auglýsingunum sem var búið að setja upp. Það fannst okkur ekki sérlega góð hugmynd morguninn eftir svo að við tókum þær niður aftur;) Svo þegar tónlistin var ekki að gera sig héldum við mini-partý í herberginu hennar Tine þar sem við settum Motown Classics á fullt. Bara snilld-lag helgarinnar er klárlega Mr.Postman, sem við sungum hástöfum alltaf-og allstaðar.
Laugardagur
Hann byrjaði með örlítilli þynnku við Brunch en svo fórum við, ég Elín og Tine út á gras og sváfum þar í góðu veðri í svona 3 tíma eða svo. Svo var aftur partý um kvöldið auðvitað, sem var mjööög skemmtilegt. Það er svosem ekkert gaman að segja frá öllu þar sem það veit enginn hvaða fólk ég er að tala um og svoleiðis. En það var allavega geggjað gaman, við dönsuðum eins og bjánar allt kvöldið, svo spilaði ég fótbolta, körfubolta og snú snú inni í leikfimissalnum, það var bara fyndið. Ég var ekki slæm þrátt fyrir að hafa verið búin að drekka nokkra bjóra.
Sunnudagur
Það var sofið úti á grasi allan daginn, farið svo og borðað pizzu...svo horfði ég á Århus by night með Tine og Idu. Búin að finna mér einn af mínum uppáhaldsleikstjórum- hann heitir Nils Malmros og hefur meðal annars gert Kundskabets træ, Kærlighedens Smerte og þessa mynd sem ég sagðist hafa horft á. Bara svona að mæla með honum ef ykkur vantar eitthvað til að horfa á-á dönsku það er að segja;)
Setningar helgarinnar eru klárlega þessar:
- “I’m gonna take u two to bed” ( sagt með perralegri röddu við mig og Tine af fyndnasta manni í heimi..haha)
- “U break u buy” (Ég að reyna að lýsa persónuleika einnar manneskju hér í skólanum- okkur fannst þetta allavega mjög fyndið)
- “His pants are the essence og his hotness” (Tine vinkona að tala um strákinn sem henni finnst agalega spennandi)
Ætla að enda þetta á nokkrum myndum bara svona til að krydda þetta aðeins:)
Thetta er ég med Emmu- stelpu frá Danmørku.
Tine Handicap Madsen is in daaa house:) Svo er myndin f. nedan af mér og Elín og Tine eru ad blása á mér hárid- theim fannst thad svaka gód hugmynd...
sunnudagur, maí 06, 2007
Blogg númer fkn* 50!!!
mánudagur, apríl 30, 2007
Viðburðarrík helgi!



Myndin fyrir ofan mig med fallegu fiskibollurnar er mynd af Olu herbergisfélaganum mínum sem var ad gera pólskan mat:9
Svo kom laugardagur. Þá var komið að þessari brúðkaupsveislu sem var búin að vera lengi á planinu. Þetta var mjög fyndið, það fengu sko allir hlutverk sem þeir áttu að leika allt kvöldið, ég átti semsagt að vera of kynþokkafull hjúkrunarkona sem var svolítil drusla líka;) Frábært! Veit ekki hvernig mér gekk að leika það...Elín þurfti svo að leika 60 ára gamla stelsjúka konu, bara gaman að þessu!! Þetta var mjög skemmtilegt:)
Já svo verdur audvitad ad nefna ad vid Elín hittum hana Katrínu okkar á sunnudaginn, hafdi ekki séd hana sídan í júní í fyrra:)
Thetta er alveg agalega fallega sett upp færsla thar sem ég get ekki skrifad fyrir nedan myndirnar og helmingurinn af textanum er med íslenskum støfum en hinn ekki:) Gaman ad thessu..en allir ad kommenta takk:)
miðvikudagur, apríl 25, 2007
Fótbolti!!
Kvedja frá Hillerød...
Eydís
sunnudagur, apríl 22, 2007
Skide fuld!!!
Bjór, tequila, rósavín, snafs, vodki, hvítvín og meiri bjór.
En svo á ødrum tímapunkti nánar til tekid daginn eftir verdur manni hugsad til baka medan madur reynir ad bæla nidur ógledistilfinningu og hausverk og áttar sig á tví ad thetta var alls ekki svo gód hugmynd.
Jáh thad er gaman ad thessu..nokkrum døgum eftir á....
föstudagur, apríl 20, 2007
Singing in the rain..literally!
Hvernig ætli fólki hafi orðið um hér í miðbænum að sjá 80 manns, klædd í fáránlega búninga og að syngja eins og þau ættu lífið að leysa, bæði lag með Justin Timberlake og eitt með Michael Jackson? Já við litum semsagt svona út.....
En thad má geta thess ad thad var sungid án thess ad vera undir áhrifum áfengis!!
Hilsen fra Hillerød...
miðvikudagur, apríl 18, 2007
JT
Nei, ég geri thad alls ekki heldur...
..en ég er samt ad fara ad gera thad á morgun!!
For fanden...
þriðjudagur, apríl 17, 2007
Sådan er det på højskole...!
- Bumbulína (bumban hennar er stærri en Elín í heild sinni)
- Sveitta stelpan (það er vond svitalykt af henni)
- Litli klapparinn (hún klappar stanslaust, ekkert nema pirrandi!)
- NK, NM, NT og NJ (N fyrir Norðmaður, hinn fyrir nafnið)
- Hreini sveinninn (fengum að vita að einn gaur væri hreinn sveinn..vúptí!)
- Reytta stelpan (hún er með frekar mikið og reytt hár)
- Mellan mín (hún er japönsk og heitir Miho..)
- Lísa (fyrir sumum meikar þetta sense)
- Trukka D-ið (nafnið hennar byrjar á D og hún er bara lessuleg)
- Obbinn ( ógisslegur strákur sem við þolum ekki)
- Gamli feiti ( sköllóttur feitur maður sem var hérna)
- Tíkin (útskýrir sig væntanlega sjálft)
- Hesturinn (hún er eins og hestur í framan)
- N-ið sem teiknar ( teiknar alla daga, allan daginn og heitir Nikolaj)
- Tvö bein (nefið á henni er eins og það séu tvö bein í því)
- Mörgæsin (hún labbar eins og mörgæs)
- Yfirlesbían (hún er yfirkokkur eldhúsins og meiri trukkur en maður hefur séð)
- Frú Von Trapp (hún lætur manni finnast að maður sé fastur í Sound of Music)
- Framtanna stelpan ( hún er með stórar og miklar framtennur)
- Síði gaurinn (hann er með sítt hár)
- Samkynhneigði mongolítinn (hann er samkynhneigður.. og líka mongolíti)
Já þessi viðurnefni eru nokkur af fjölmörgum sem við notum til þess að tala eins
mikið um alla og við viljum. Ekki misskilja, við sitjum ekki og tölum um þau allan
daginn;) En það er voða gott að geta sagt allt sem manni langar til. Án þess að nokkur
maður skilji! Þetta getur verið mjög skemmtilegt, nema þegar maður sér hreina
sveinin og maður fær lagið “Like a virgin” á heilann...í hvert einasta skipti! Ahhhhhh
Jæja nú mega allir kommenta takk fyrir;)
laugardagur, apríl 14, 2007
Berlin...
Döner Kebab~Reichstag~Mehr Sonne~Bier~Kinderei~Flammkuchen~BrandenburgerTor~
Das leben ist wunderbar!!!
þriðjudagur, apríl 10, 2007
Ferdalangur....
- Matur...
- Nammi...
- Kvikmyndir...
- Verslad í midbænum..
- Farid í keilu...
- Farid á djammid med tveimur vinum Jarle og eldri systur hans Mailinn
- Matarbod hjá bródur Mariann sem er med kaktus fettish og á um 1000 líklega...
- og bara svona venjuleg kósýheit:)
föstudagur, apríl 06, 2007
mánudagur, apríl 02, 2007
This one time..in band camp...and it was sooo funny!
*Á leiðinni heim óttuðumst við eilítið um líf okkar því að hinumegin við ganginn sat svartur maður. Við vorum ekki hræddar við hann útaf því samt..heldur af því að hann talaði stanslaust við sjálfan sig á einhverju kreóla máli og reifst líka við sjálfan sig. Við veltum því fyrir okkur hvort hann sæi einhvern sem við sáum ekki eða hvort að hann væri bara að rífast við hinn helminginn af sér...hann var allavega ekki sáttur þegar hann áttaði sig á því að hann var í vitlausri lest..!
*Við erum svo búnar að finna okkar innri Hómer Simpson, drekkum mikið af bjór hvenær sem er dagsins og gúffum einhverju rusli í okkur á meðan..
*Fundum upp Feitubollu dansinn. Skemmtilegt dansmúv!
*Djömmuðum stanslaust í þrettán tíma...
*Keyptum kassa af bjór sem innihélt 30 bjóra, þeir eru búnir auðvitað.
*Fengum þá skemmtilegu hugmynd að það væri geggjað fyndið að fara í öll fötin í einu sem eru inn í þvottahúsi, bæði óskilaföt og þau sem var verið að þurrka.
miðvikudagur, mars 28, 2007
INNANLANDSLUG= HROTTALEGUR-ÓGEÐIS-HRYLLINGS-VIÐBJÓÐUR.
Við vorum svo komin upp í Egilsstaði rétt fyrir 9, en átti flug 25 mínútur yfir 9. En maðurinn í innrituninni sagði mér að ég yrði bara að bíða vegna þess að það væri ekki flogið alveg strax. Ég leit út...það var sól og blíða. Fannst það heldur undarlegt. En hann sagði mér að það væri vegna þess að það væri svo mikill vindur í háloftunum. Ég hugsaði með mér: ,,Fjandinn sjálfur!! Er það líka til. Fráááábært.” En ég ákvað að taka það rólega. Fékk samt smá kvíðakast vegna þess að ég átti flug frá Keflavík kl 14:15. Það var að verða frekar tæpt. Svo þegar pabbi var nýfarin fékk ég að vita að það yrði ekki flogið fyrr en um kl tvö frá Egilsstöðum. Það var greinilega ekki að fara að gerast að ég yrði um borð í þessari vél sem ég átti að ná. Við vorum margir Fáskrúðsfirðingar þarna saman sem biðum þannig að þetta var svosem ekki svo slæmt að vera fastur í smástund..mér finnst hvort eð er allt betra en að vera í flugvél. Það er samt ekki gott fyrir mig að þurfa að bíða eftir flugi á flugvellinum því þá byggist upp spenna sem býr til svona all svakalegan kvíðahnút í magann á mér sem meira segja nær að láta mig fá illt í rifbeinin.
Svo kom ,,loksins” að því að ég var komin útí vél. Ég hugsaði bara með mér að ég yrði að halda mér rólegri og ekki fá eitthvað fáránlegt taugaveiklunar- geðveikiskast. Mér tókst að halda mér rólegri þangað til ég var komin í sætið mitt. Þá byrjaði ég að fá svona hita og kuldaköst til skiptis. Ég svitnaði svona köldum svita inn í lófunum. Eina sem ég hugsaði var..greyið maðurinn sem situr við hliðina á mér! Hann veit ekki á hverju hann á von. Svo er það að sjálfsögðu ekki að gera sig þegar er spiluð svona jarðarfararleg tónlist meðan maður er að koma sér í sætið sitt. Nei, klárlega ekki að gera sig! Þeir komu svo rellunni út á flugbrautina eftir að fólkið var komið í sætin og stoppuðu þar. OHHHH hvað ég hata þetta smá stopp rétt fyrir flugtak. Enn betra þegar flugstjórinn býður okkur góðan daginn og segir svo..,,já það er víst all svaðalegur háloftavindur svo það má búast við mikilli ókyrrð á leiðinni!” Ertu að fokkings grínast????
En svo var komið að flugtaki. Það er pottþétt í uppáhaldi hjá mér. Ég bara elska þegar þeir gefa svona í og rétt drullast upp í loft hoppandi og skoppandi eins og það sé ekkert í heiminum meira skemmtilegt. Já ég elska það svo mikið að ég ýtti mér eins fast og neðarlega í sætið og ég gat, spyrnti svo fast í sætið fyrir framan að ég fékk marbletti á hnén og maðurinn fyrir framan mig skildi líklega ekkert af hverju hann borgaði jafnmikið og aðrir fyrir sæti með helmingi minna fótaplássi. Ég klemmdi eyrun saman með höndunum eins fast og ég gat og lokaði augunum. Ég reyndi að anda eðlilega en allt kom fyrir ekki..oföndun var næsta víst. Ég skalf og nötraði eins og hrísla í vel hraustlegum norðanvindi á öræfum og grét eins og ég ætti lífið að leysa. Maðurinn við hliðina á mér hélt líklega að ég hafi bara rétt aðeins fengið að skreppa heim að heimsækja foreldra mína en nú hafi ég auðvitað verið á leiðinni aftur inn á Klepp þar sem ég ætti greinilega heima. Hann reyndi að stappa í mig stálinu með því að segja: ,,Veistu að það er miklu öruggara að fljúga heldur en að keyra bíl? Þetta verður sko allt í lagi!” Vá, sætt af honum en virkar ekki rassgat á snar taugaveiklaða manneskju.
Svo var komið að því að biðja. Ég er alls ekki trúuð manneskja en í flugi fer ég alltaf með Faðir Vorið..jafnvel á spænsku líka! Þegar ég var svo orðin mjög þreytt á að klemma eyrun saman þá tróð ég fingrunum svo fast inn í eyrun að það var eins og ég hafi haldið að þar væri falin fjársjóður. Þegar þessi bévítans rella var svo loksins komin í tilætlaða flughæð, rétti sig af og slökkt var á sætisbeltaljósunum þá gat ég loksins farið að róa mig aðeins. Allavega nóg til að geta fengið þurrku hjá flugfreyjunni til að þurrka framan úr mér, það er ekki heillandi að vera með maskara niður á kinnar og hor útum allt andlit.
Mér finnst endalaust frábært þegar er svo aftur kveikt á sætisbeltaljósunum og flugstjórinn segir að nú sé að koma að ókyrrðarkafla. Má ekki bara leyfa þessum fæðingarhálfvitum að reka hausinn í sem dettur í hug að fara úr beltinu í staðinn fyrir að vera hræða líftóruna úr þeim sem hafa vit á að sitja í sætum sínum og biðja fyrir lífi sínu? En svo fann ég fyrir svo miklum létti þegar ég fann að flugvélin var farin að lækka flugið. En það tók samt við annað taugaveiklunar-geðveikiskast þrátt fyrir það, samt ekki jafn slæmt og við flugtak. Þegar ég var loksins komin niður á jörðina langaði mig að hlæja af gleði og kyssa malbikið þegar ég var komin út. En ég vildi nú ekki alveg fullvissa fólk um að ég sé nú ekki alveg heil. Það er nóg að þau séu í miklum vafa um geðheilsu mína eftir flugferð með mér.
Já svona eru flestar flugferðir fyrir mig. En ég held samt alltaf áfram að fljúga einfaldlega vegna þess að ég elska að ferðast. Hef samt virkilega hugleitt að fara á flughræðslu námskeið, fékk númerið hjá flugfreyju í einni af mínum skemmtilegu flugferðum...en það er eins gott að það sé eitthvað í það varið því það þýðir sko ekkert að reyna að skella bara einhverri tölfræði og staðreyndum á mig takk fyrir!
Ef einhver kemst alla leið hingað..þá væri frábært að fá komment;)
-Eydís taugahrúga.
föstudagur, mars 09, 2007
50 staðreyndir um mig...
- Ég heiti Eydís Ósk Heimisdóttir
- er fáskrúðsfirðingur
- ..en er samt ættuð frá Djúpavogi líka
- Hélt lengi vel að mamma mín væri alveg örugglega ættuð frá útlöndum
- Byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var 11 ára
- ..er ennþá frekar léleg í fótbolta þrátt fyrir áralanga þjálfun
- Ég dýrkaði Peter Andre á vissu tímabili ævi minnar..klárlega ekki það gáfulegasta..
- Byrjaði ekki að plokka á mér augabrúnirnar fyrr en ég var í 10. bekk, ég var samt bara með eina..
- Hef aldrei litað á mér augabrúnirnar heldur
- Á dagbækur frá 11 ára aldri, í einni eru bara færslur um leynifélög sem ég stofnaði..
- Hef borðað hádegismat með Björk Guðmundsdóttur
- ..og farið í siglingu með mömmu hennar og fyrrverandi fósturpabba (ásamt fleirum)
- Er ALGJÖR tungumálalúði
- Ég trúði systur minni einu sinni þegar hún sagði að ég væri ættleidd
- Vil helst ekki tala fyrir framan mikið af fólki
- ..þegar ég þarf þess finn ég fyrir allskyns líkamlegum vandamálum svosem andnauð og ógleði
- Það hefur komið mynd af mér í spjallþættinum með Conan O’Brien
- Ég veit allt of mikið um fræga fólkið
- Tala spænsku eins og innfæddur dóminíkani..og fíla það í botn
- Mér fannst Mary Kate og Ashley Olsen frábærar þegar ég var yngri og vildi helst af öllu eiga tvíbura og vera alveg eins og þær..
- Hef alltaf verið alveg hrikalega óákveðin með vissa hluti, eins og hvaða föt ég á að fara í, hvað ég á að borða í kvöldmatinn, á hárið að vera í tagli eða slegið, hvað mynd ég á að horfa á..erfiðar ákvarðanir!
- Ég er HRIKALEGA flughrædd..
- Ég elska fótboltaspil og er ógeðslega góð í því. Og ég veit af því!
- Ég hef komið fram á sviði í samfellu..ég af öllu fólki.
- Hef eytt heilu ári í Karabíska hafinu..
- ..æfði tennis allan þann tíma..
- Ég er frekar kaldhæðin
- Ég gleymi mjög oft að hugsa áður en ég tala..
- Ég HATA pasta!!
- Ég er frekar hreinskilin manneskja..eða svo er mér sagt:)
- Ég kann að gleypa og spúa eldi..
- ..og ganga á eins metra háum stultum
- ..ekki bæði í einu samt..!
- Mér finnst rjómaís ógeðslegur og borða heldur ekki poppkorn
- Ég er mjög þrjósk, sem dæmi um það þá neitaði ég að loka hurðum sem ég opnaði ekki þegar ég var lítil, þó svo að mamma stæði með fullar hendur af innkaupapokum....
- Ég kann að dansa Merengue
- Var einu sinni beðin að vera sumarstúlka í séð og heyrt, ég sagði nei..
- Jim Carrey á sérstakan stað í hjarta mínu:)
- Ég átti einu sinni mús sem hét Dúlla og þar áður páfagauk sem hét Blámína.
- Svo átti ég allt í einu 12 páfagauka...
- Ég átti líka einu sinni íðilfagran Daihatzu Cuore
- ..en hann dó á leiðinni yfir fjöllin frá Akureyri til Egilsstaða
- Ég er ótrúlega gleymin, ég á stóra minnisbók til að skrifa allt sem ég á að gera niður..en því miður á ég til að gleyma bókinni líka..
- Mér langaði alltaf svo að læra á fiðlu þegar ég var yngri..
- Ég elska kvikmyndir, og allt sem gerist í kringum þær;)
- Ég fór í fyrsta sinn til útlanda þegar ég var í 9. bekk
- Þegar ég var lítil langaði mig að verða dýralæknir..eða leikkona!
- Ég elska boltaíþróttir, allar nema blak
- Ohh, ég dýrka humar, harðfisk, kea skyr, bastelitos og platano...
- Ég sýndi snemma hvað ég hef sérstaklega góða rökhugsun, alveg sama um hvað er að ræða;)...þegar ég var svona 3. ára þá var ég að tala við afa minn í svona snúrusíma...
Ég: “afi..bíddu aðeins”
Afi: “allt í lagi,”
Ég dró símann inn á bað og stakk tólinu á kaf í klósettið, tók það svo upp úr og sagði svo:
“Afi, ertu blautur í eyranu??”
Jamm mér tókst að koma með fimmtíu staðreyndir, en það er öllum velkomið að skrifa eitthvað í komment ef einhverjum dettur eitthvað í hug;)
þriðjudagur, mars 06, 2007
Ó, BLESSUÐ VERTU SUMARSÓL
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðavötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár.
Nú fellur heitur haddur þinn
á hvíta jökulkinn.
Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin hvika' á kinn
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
og heim í sveitir sendirðu' æ
úr suðri hlýjan blæ
Þú fróvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali' og klæðir allt,
og gangirðu' undir gerist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðavötnin blá.
Já, pabbi kann víst ad lesa bloggid mitt..:)
miðvikudagur, febrúar 28, 2007
Ammilli
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
Hvor er det sjovt..!
Jarle hefur svo verið í heimsókn hjá mér síðan á mánudag, erum búin að hafa það mjög gott og afar rólegt! Hann fer svo til Íslands á morgun að vinna meira á Reyðarfirði, sem er líklega bara tóm hamingja fyrir hann
Í dag var svo skyldu-dansæfing fyrir Gala-veislu sem er fljótlega. Við þurftum að dansa Lancier sem er hóp og paradans sem maður sér oft t.d í myndum frá viktoríutímanum, (þar sem allir hneigja sig og beygja, snúa sér í hringi og alls konar vesen!) ég tók mig klárlega mjög vel út í því. Er auðvitað búin að fá hellings æfingu eftir að ég og Elín (og tveir aðrir) vorum að gera dansvideo í kvikmyndagerð. Það er óskarinn fyrir það skal ég segja ykkur. Það verður sýnt á laugardaginn. Þá verður eimmitt Valgerður vinkona í heimsókn hjá mér og Elínu, hlakka ekkert smá til!
En eins og þið hafið lesið þá hef ég það mjög fínt þrátt fyrir skítakulda og snjó “þunga” hér í Danaveldi. En af Regínu er það að frétta að hún heldur að það sé þrír klukkutímar í sólarhringnum á norðurpólnum og ef maður biður Elínu að koma með íslensk orðatiltæki þá horfir hún á mann með skrítnum svip og segir “ha, tryllitæki”?? Þær eru klárlega búnar að drekka of mikið hérna...híhí..!
Vonandi nennir einhver að lesa þessa færslu, þetta er allt of langt..og líka með myndum..en endilega plís kommentið takk! Líka fólk sem ég þekki ekki takk!
Hér er svo eimmitt mynd af mér á kaffihúsi í Malmø..
Kveðja frá Hillerød,
Ædís Teimisdottir ( þetta vilja danir endilega kalla mig..)
mánudagur, febrúar 12, 2007
Fastelavnsfest!
· Fimmtudagskaffihúsakvöld (eitt orð eða fleiri??) var tekið með trompi af okkur Íslensku stelpunum og við smelltum í okkur einum sex bjórum eða svo..
· Mættum í morgunmat klukkan átta á föstudagsmorguninn..ótrúlegt en satt!
· Föstudagur var líka tekinn með trompi, drukkum aftur eins og meðalvíkingar og sýndum hvað við gátum í Singstar..og líka hvað við gátum bara alls ekki..:)
· Á laugardaginn fór ég svo að sækja Bonnie vinkonu mína sem ég hef ekki séð í þrjú ár, eða síðan við vorum skiptinemar úti í Dóminíska..
· Það var fastelavns þema á laugardagskvöldinu, fastelavn er eins og öskudagurinn á Íslandi.Ég drakk eins og ég væri fimm full vaxnir menn.. heila Bacardi Limón flösku (stóra), 4 bjóra og rauðvín....
· Afleiðingarnar af þessari drykkju hjá okkur stelpunum voru þær að við dönsuðum eins og við ættum lífið að leysa, spiluðum fótboltaspil sem er skuggalega erfitt þegar maður er fullur, sumir sungu íslenska þjóðsönginn..hástöfum..inni í símaklefa..ekki ég..hehe..við töluðum dönsku eins og innfæddar..eða héldum það...og ég blandaði saman spænsku, ensku, dönsku og íslensku..og sumir fóru í Stela Sprota og Hlaupa leik...ekki ég..en fyndið!! J
· Vaknaði þrátt fyrir allt þetta aldeilis fersk á sunnudaginn og við skelltum okkur allar beint í Brunch.
· Eftir Brunch fór ég svo með Bonnie til Köben og þar fengum við okkur meira að borða og spjölluðum á spænsku allan daginn! Mjög fín helgi myndi ég segja...
Vona bara að mamma og pabbi komist ekki yfir þessa færslu..híhí
En ákvað að láta myndir fylgja með víst að það er yfir höfuð hægt..
Allir að kommenta takk...!!!
Kveðja frá Danmark...
Hér er koma myndir af okkur vitleysingunum..
mánudagur, febrúar 05, 2007
Baðherbergið mitt
Eins og sést alveg klárlega á þessari mynd ad nedan þá er baðherbergið mitt hérna í Hillerød ekkert sérlega stórt. Eftir þennan tíma sem ég hef verið hér hef ég samt séð að það hefur uppá mjög marga möguleika að bjóða...
- Fara á klósettid medan madur er í sturtu..
- Tannbursta sig meðan maður er á klósettinu..hljómar illa samt..
- Nota tannþráð í sturtunni..
- Þrífa baðherbergið meðan maður er í sturtu..
- Athuga hvort maður geti labbað upp veggina með hendur á öðrum og lappir á hinum..
- Æfa gretturnar í speglinum á meðan maður er að setja sjampóið í hárið..
- Plokka augabrúnirnar í sturtunni..
- Telja allar flísarnar á gólfinu..og á veggjunum á 30 sekúndum
Já ég verð að segja að það er margt sem litla baðherbergið býður uppá!!
Ætla samt að taka fram að ég hef ekki prufað alla möguleikana...


